logo

Varsjárbandalagið

Varsjárbandalagið

Varsjárbandalagið var stofnað í febrúar 2009 og er því 3 ára um þessar mundir. Hljómsveitina skipa sex tónlistarmenn sem koma úr öllum áttum í tónlistarlegum skilningi. Það sem sameinar þessa einstaklinga er áhugi þeirra á Austur-Evrópskri tónlist og gyðingatónlist. Á síðasta ári kom út fyrsta plata sveitarinnar, Russian Bride og hefur hún fengið góðar viðtökur. Varsjárbandalagið hefur leikið víða um land við góðar undirtektir.

Sveitina skipa:

Magnús Pálsson - klarinett og söngur

Karl James Pestka - fiðla og söngur

Sigríður Ásta Árnadóttir - harmonikka og söngur

Ásgeir Ásgeirsson - gítar, bandoura o.fl.

Hallur Guðmundsson - bassi og söngur

Steingrímur Guðmundsson - trommur