logo

Svavar Knútur

Svavar Knútur

Svavar Knútur söngvaskáld hefur getið sér gott orð bæði sem söngvari/gítarleikari og lagasmiður, en einnig sem forsprakki hljómsveitarinnar Hrauns. Undanfarin misseri hefur hann gert víðreist bæði heima og erlendis og m.a. farið í lengri tónleikaferðir um Þýskaland og Ástralíu, en styttri tónleikaferðir og stakir tónleikar verið í Bretlandi, Frakklandi, Danmörku, Svíþjóð og Kanada.
 
 
Fyrsta sólaplata Svavars Knúts Kvöldvaka kom út í takmörkuðu upplagi 2009 og var einungis seld á tónleikum. Hún seldist fljótlega upp og var endurútgefin fyrir almennan markað í ársbyrjun 2010. Önnur sólóplata hans Amma kom út árið 2010.