logo

Melchior

Melchior 

Hljómsveitin Melchior hefur allt frá stofnun, 1973, flutt dæmigerða stofutónlist, frumsamið kammerpopp.  Þótt tónlistin megi flokkast sem popp, hafa sígíld hljóðfæri, s.s. selló, óbó, trompett, básúna, fiðla og víóla leikið lykilhlutverk í útsetningum og rafmögnun tónlistarinnar hefur ætið verið mjög hófleg.
Tónlist Melchiors hefur alltaf þótt vönduð og metnaðarfull og hefur sveitin mikið lagt upp úr útsetningum, þótt þær hafi á sér yfirbragð látleysis.
Melchior starfaði lengst af á seinni hluta áttunda áratugar síðustu aldar. Á þeim tíma gaf sveitin út eina tveggja laga plötu auk Silfurgræns ilmvatns og Balapopps.  Árið 2009 hafði Melchior ekki komið saman á almennum tónleikum síðan 1978.  Þá gaf hún út plötuna melchior, sem m.a. innihélt hið vinsæla lag Fiskisúpa Sigríðar í Fjöruhúsinu.  2010 voru gömlu vínilplöturnar gefnar út á tveimur diskum sem hlutu nafnið <1980 og gladdi það margan að fá að heyra gamla smellinn Alan á ný.
Í vor er væntanleg ný plata með hljómsveitinni og mun hún leika nokkur lög af henni á Reykjavik Folk Festival auk eldri gullmola.

Melchior skipa þeir Hilmar Oddsson  (hljómborð, gítar og söngur), Hróðmar Ingi Sigurbjörnsson (gítar og söngur) og Karl Roth (gítar og söngur), Gunnar Hrafnsson (bassi), Kjartan Guðnason (slagverk) og Kristín Jóhannsdóttir (söngur).  Auk þeirra leika yfirleitt ýmsir gestir á hin klassísku hljóðfæri.