Listamenn
Listamenn sem staðfest hafa komu sína á Reykjavik Folk Festival 2012 eru:
Kvonn, fimm manna færeysk þjóðlagasveit. Einn hljómsveitarmeðlima er Kristian Blak sem heimsótt hefur Ísland áður með mismunandi tónlistarhópum.
Illgresi, fjögurra manna íslensk hljómsveit sem fæst við spilaða bluegrass tónlist.
Gæðablóð, sex manna íslensk hljómsveit sem spilar frumsaminn vísnablús.
Kerala, íslenskt tríó sem leikur tónlist frá Indlandi og Tyrklandi og fleiri löndum. Meðal annars íslenska miðaldatónlist.
Benjamin Koppel og systir hans Marie Carmen Koppel koma frá Danmörku.
Hljómsveitin Melchior, sex manna íslensk hljómsveit sem leikið hefur frumsamið kammerpopp frá 1973.
Varsjárbandalagið, sex manna íslensk hljómsveit sem sérhæfir sig í austur evrópskri tónlist og gyðingatónlist.
South River Band, fimm manna íslensk hljómsveit sem spilar og syngur heimshornatónlist, eldri tónlist í bland við frumsamin lög og texta.
KK, landsþekktur tónlistarmaður og söngvaskáld.
Kryss, fimm manna hljómsveit sem starfar í Danmörku er skipuð tónlistarmönnum frá Danmörku, Noregi og Ghana. Meðal meðlima má nefna Pierre Dørge og Eskil Romme.
Halli Reynis, trúbador af gamla skólanum sem mætir með gítarinn. Halla til fulltingis verður Jón Skuggi á kontrabassa.






