Illgresi

Bluegrass hljómsveitin Illgresi varð til sumarið 2009 þegar leiðir meðlima lágu saman í leit sinni að einhverjum til að spila bluegrass með hér á Íslandi.
Illgresi samanstendur af þeim Guðmundi Atla Péturssyni á mandólín, Vigni Þór Pálssyni á fimm strengja banjó, Arnbirni Sólimann Sigurðssyni á kassagítar og Eiríki Hlöðverssyni á kontrabassa.
Auk þeirra hafa þó fleiri meðlimir staldrað tímabundið við í sveitinni, en þó eru það alltaf þessir fjórir kjarnameðlimir sem skipa sveitina.
Illgresi fæst við instrumental bluegrass tónlist, hraða og hressa, í þeim stíl sem rekja má til uppruna þessarar tónlistar. Tónlist manna á borð við mandólínleikarann Bill Monroe og hljómsveitar hans The Bluegrass Boys, banjóleikarans Earl Scruggs ásamt fleirum slíkum frá árunum eftir seinna stríð. Á lagalistum Illgresis eru gamlir standardar á borð við Foggy Mountain Breakdown og Paddy on the Turnpike í bland við yngra efni t.d. úr röðum mandólínleikarans David Grisman og banjóleikarans Béla Fleck.
Þar sem enginn söngur er í efni Illgresis gengur flutningurinn út á að hljóðfærin skiptast á að spila laglínuna og taka sóló, en þetta hefur tíðkast í bluegrass tónlist frá upphafi.






