logo

Velkomin á Reykjavik Folk Festival 2012

Reykjavik Folk Festival 2012 verður haldin dagana 7. - 10. mars á Kaffi Rósenberg í Reykjavík. Á þessari vefsíðu má fræðast um tildrög hátíðarinnar, markmið aðstandenda, fyrri hátíðir og dagskrá komandi hátíðar eftir því sem hún verður til.
 
Efnið á þessari síðu er hugsað sem fræðslu- og ítarefni fyrir alla þá fjöldamörgu sem tekið hafa þátt í fyrri hátíðum, bæði tónlistarmenn og tónlistarunnendur. Samskipti og umræður sem breytast frá degi til dags fara fram á Facebook síðu hátíðarinnar en hér til hliðar má sjá Facebook gluggann okkar.
 
Við hvetjum alla velunnara Reykjavik Folk Festival til að vera virkir á Facebook síðunni okkar.
 
Samstarfsaðilar okkar eru RÚV, Reykjavíkurborg, Kaffi Rósenberg og midi.is.
 

Greint frá þátttakendum

18 nóvember 2011

 Við erum byrjuð að setja inn upplýsingar um tónlistarmenn á Reykjavik Folk Festival 2012. Yfirlit hljómsveita má sjá hér.

Tímasetning RFF 2012 liggur fyrir

12 júlí 2011

Búið er að ákveða tímasetningu fyrir Reykjavik Folk Festival 2012.